20/20
Það staðfestist hér með að þessi texti er skrifaður án hjálpartækja. Engar linsur. Engin gleraugu. Bara fullkomin sjón á þessum bæ.
JABBADABBADÚ!
Friday, April 13, 2007
Thursday, March 29, 2007
Rakst á þessa frétt á mbl.is. Áhugavert. Þýðir það þá að foreldrar tvíbura missi þá helmingi meiri svefn? Hvað þá ef tvíburarnir eru frumburðir?! Vá, nú skil ég af hverju mér líður eins og ég sé þunn alla daga.
....
....
Saturday, March 24, 2007
Það styttist óðum í páskana og afmælið mitt. Í fyrra var þetta fremur dapurlegt að því leyti að ég gat ekki borðað súkkulaði (frekar en nokkuð annað) og afmælisdeginum eyddi ég á dagönn meðgöngudeildarinnar með næringu í æð. Minnugur þessa og vitandi hversu heitt og innilega ég elska páskaegg og hve ofboðslega sár ég var í fyrra að geta ekki borðað slíkt kom eiginmaðurinn heim í dag með óvænta gjöf handa mér. Risaegg frá Nóa. Held að það sé heil 1500 grömm. Já, ég held ég borði páskaegg þessa páskana....
Friday, March 23, 2007
Ég er alveg ógeðslega rykug í kollinum í dag. Nóttin var fremur erfið, sú litla er eitthvað að kvefast og var því í órólegri kantinum. Svaf því lítið frá hálffjögur og svo var liðið auðvitað vaknað klukkan sjö. Heyrði það í gær að ein tvíburamamma lýsti því sem svo að fyrstu tvö árin með tvíbura vaknar maður alltaf eins og maður sé hálfþunnur. Well, 16 months to go...
Kláraði í fyrradag að horfa á nýju Jane Eyre seríuna. Er enn að ákveða hvort ég fíla þann sem lék Mr. Rochester. En Jane er alveg yndisleg persóna í þessari leikgerð. Er ekki gerð eins ferlega ljót eins í þáttunum sem ég sá fyrir um 20 árum. Get alveg mælt með þessum þáttum, þeir eru listavel gerðir eins og er alveg einkennandi fyrir BBC. North and South er þó enn með vinninginn af þessum nýrri þáttum og á toppnum trónir svo Colin Firth og Pride and predjudice. Ó jess. Þótt N&S með Richard Armitage narti þarna aðeins í hælana....
Jæja, best að fara að brjóta saman þvott og engjast með aulahroll yfir morgundagskrá Stöðvar 2.

Wednesday, March 14, 2007
Monday, March 12, 2007
Það hefur nú ekki gefist mikill tími til að skrifa hér á bloggið, ég og börnin lögðumst í gubbupest frá helvíti og á sama tíma skrúfaðist allt á fullt í vinnunni hjá bóndanum. Við skröltum þó í gegnum þessi veikindi en ég fékk nóg af því að fálma eftir gleraugunum um miðjar nætur (já eða sofa með þau skökk á nefinu) og tók upp símann og er búin að panta mér tíma hjá kraftaverkalæknunum. Stefni á að vera komin með ný og betri augu í lok apríl. Vonandi. Verður svolítið "the end of an era" - nærsýnisárunum lýkur allt í einu. Sófus gleraugnaglámur verður bara kannski ekkert svo mikill glámur lengur. Segi enn og aftur vonandi. Maður veit aldrei.
Erum líka búin að panta ferð í sólina í lok maí. Þannig að maður verður að vera bæði duglegur í göngutúrunum og súkkulaðiaðhaldinu svo maður geti skammlaust labbað niðrá strönd. Sem betur fer eru börnin ekki farin að labba neitt, þannig að ég þarf ekki að skottast fram og aftur sundlaugarbakkann veifandi slöppum lærum og rasskinnum....
Svo þegar maður er heima alla daga þá verður maður áþreifanlega vör við það sem þarf að gerast heima hjá manni á sviði framkvæmda og hreingerninga. T.d. núna er lóðin með ógeðslegra móti og beðin forljót. Það vantar að klára að setja upp ljós inni, lista og svo klára fjandans stigann. En það gerist víst bara eitt í einu þegar tvö lítil börn þurfa athygli og umönnun. það er þó komið upp nýtt ljós yfir borðstofuborðinu og Ikea kransinn kominn niður. Loksins.
Hef annars verið að dunda mér við að pæla í af hverju fylgi kvenna við stjórnmálaflokka hefur verið að færast til vinstri og Samfylking Ingibjargar Sólrúnar er eitthvað ósköp losaraleg. Ansi áhugaverð þróun miðað við síðustu kosningar. Læt ykkur vita þegar ég er búin að hugsa þá hugsun til enda.
p.s. Fékk splunkunýja BBC seríu á dvd í póstinum frá Amazon - Jane Eyre. *sæluhrollur* Gaman, gaman...

Sunday, March 04, 2007
Ég er ekki frá því að hún hafi rétt fyrir sér - Mogginn fer minnkandi með degi hverjum. Hver man ekki eftir hnausþykkum sunnudagsmogganum sem maður stalst í á laugardagskvöldi og gat líka lesið morguninn eftir?
Hann rétt dugar með hálfum kaffibolla núna.